Varamenn í stjórn
- Jens Garðar Helgason
- Ragnar Óskarsson
- Guðveig Eyglóardóttir
- Jón Bragi Gunnlaugsson
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
Stjórn Landsvirkjunar er samkvæmt lögum um Landsvirkjun skipuð af fjármálaráðherra á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn skal fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Hún ber ábyrgð á fjármálum og rekstri fyrirtækisins.
Stjórn Landsvirkjunar ræður forstjóra sem veitir fyrirtækinu forstöðu. Forstjóri er Hörður Arnarson. Stjórn og forstjóri fara með stjórn fyrirtækisins. Stjórn setur sér starfsreglur í samræmi við sjöttu grein laga um Landsvirkjun.
Núverandi stjórn var skipuð á aðalfundi fyrirtækisins þann 26. apríl 2023.