Arðgreiðsla hækkuð í 30 milljarða
Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti tillögu stjórnar um 30 milljarða arðgreiðslu í ríkissjóð.
Á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag, 30. apríl, skipaði fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn fyrirtækisins, í samræmi við lög sem um það gilda.
Yfirstíganleg verkefni í orkumálum
Tækifæri til bættrar orkunýtingar eru mikil og það sem upp á vantar í orkuöflun kallar á frekari virkjanir. Það er sameiginlegt úrlausnarefni allra landsmanna að koma að orkuskiptunum.
Grein eftir Þóru Arnórsdóttur, forstöðumann Samskipta.
Jákvæður áfangi í höfn í leyfismálum Hvammsvirkjunar
Umhverfisstofnun hefur veitt heimild til breytinga á vatnshloti vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun. Þetta eru gleðitíðindi – undirbúningur fyrir byggingu Hvammsvirkjunar hefur staðið lengi og með þessu færumst við skrefi nær því að geta hafið framkvæmdir.
Grein eftir Ásbjörgu Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra framkvæmda.
Skerðingar áfram í slæmu vatnsári
Landsvirkjun á ekki annarra kosta völ en að skerða afhendingu raforku til viðskiptavina sinna lengur fram á vorið en vonast hafði verið til.
Ástæðan er fádæma lélegt vatnsár þar sem gengið hefur hratt á uppistöðulón okkar.
Grænu skrefin okkar
Starfsstöðvar okkar á Mývatnssvæði, Sogssvæði, Þjórsársvæði og í Fljótsdal stóðust endurúttekt Grænna skrefa nú í marsmánuði 2024.
Landsvirkjun hefur verið þátttakandi í verkefninu síðan 2015.
Bónus, viðbót eða umframorka
Grein eftir Hörð Arnarson, forstjóra.
„Því miður er oft látið eins og skerðanleg orka sé neikvæð á einhvern hátt. Kannski vekur nafnið þau hughrif. Réttara væri að kalla þetta bónusorku, viðbótarorku eða umframorku. Það er ekkert nema jákvætt um það að segja að hægt sé að selja þessa umframorku og margir sem hafa notið góðs af því að fá ódýrustu orkuna sem í boði er – þegar hún er í boði.“
Landsvirkjun og Laxey gera grænan raforkusamning
Landsvirkjun og Laxey ehf. hafa gert með sér samning um sölu og kaup á endurnýjanlegri raforku til uppbyggingar nýrrar landeldisstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum.
Raforkuöryggi
Við þurfum meiri græna orku til að sinna orkuskiptum og almennum vexti í samfélaginu.
Mikil eftirspurn er eftir raforku og við verðum að gæta þess að heimili og almenn fyrirtæki fái þá orku sem þau þurfa.
Þau eiga ekki að þurfa að keppa við stórfyrirtæki landsins um orkuna. Aukin orkuvinnsla skilar ekki raforku fyrr en 2026 og 2028.
Ábyrg nýting auðlinda
Við höfum sett okkur metnaðarfulla loftslags- og umhverfisstefnu.
Við berum virðingu fyrir náttúru landsins og leggjum ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum. Við stefnum að kolefnishlutleysi 2025 en þá verður binding kolefnis í starfsemi okkar að minnsta kosti jafn mikil og losun þess.
Tíminn fyrir aðgerðir er núna. Við ætlum að leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni.
Öflugur og eftirsóknarverður vinnustaður
Starfsfólkið okkar gegnir lykilhlutverki í vegferð Landsvirkjunar í orku- og loftslagsmálum.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda. Við viljum að orkufyrirtæki þjóðarinnar sé framsýnn vinnustaður sem stuðlar að fjölbreytileika og mætir þörfum starfsfólks um sveigjanleika.
Grænvarpið
Grænvarpið, hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir, fjallar um sjálfbæra þróun og bætta nýtingu auðlinda, hvort sem um er að ræða vinnslu endurnýjanlegrar orku eða aðra þætti hringrásarhagkerfisins.
Rætt er við áhugafólk og frumkvöðla um græna nýsköpun og tækifæri á því sviði.